34 gráður í Winnipeg
![]() |
| Mannréttindasafn Kanada |
Hvað gerir maður þegar hitinn er 34°C? Venjulegur Íslendingur finnur sér loftkælt safn til að skoða a.m.k. sá sem er í menningar- og fræðsluferð. Eitt glæsilegasta safnið í Winnipeg er Canadian museum for human rights eða Mannréttindasafn Kanada. Safnið er ekki bara áhugavert og fræðandi heldur er byggingin í sjálfu sér listaverk. Safnið var opnað 2014 og þar er fjallað um mannréttindi almennt bæði hvað hefur áunnist og eins marga þá hræðilegu atburði sem framdir hafa verið á þjóðum og kynþáttum. Efnið er sett fram á fjölbreyttan hátt með skiltum, munum, tali og tónum. Svo eru alls staðar krókar og kimar þar sem hægt er að setjast niður og kynna sér efnið betur, horfa á stutta mynd eða lesa nánar. Sérsýning er um Nelson Mandela og baráttuna gegn Apartheid í Suður-Afríku. Þarna áttum við góðan dag, þó auðvitað væri þarna verið að rifja upp svörtustu hliðar mannlífsins. Þó við værum niðurdregnar yfir heimsku og mannvonnsku feðraveldisins þá fuku þær áhyggjur þegar komið var út í funheitt rokið. Blómin af trjánum voru eins og skafrenningsbylur svo við vorum fegnar að finna strætó til koma okkur heim.

Ummæli
Skrifa ummæli