Bildfells kirkjugarðurinn

Merki við hliðið


Það er sérkennilegt þegar maður nálgast Foam Lake að lesa á vegaskiltin. Þar er Thingvalla road, Gislason farm, Solvason auction og skilti sem vísar á Icelandic settlement memorial. En við vorum með verkefni. Sigríður leiðsögukona í tækinu gaf engin svör en Google vinur okkar fann Bildfells cemetery eins og ekkert væri. Samt þurfti að beygja tvo ónefnda vegi til að finna staðinn.
Vel merktar grafir með  steyptu loki
Gisli Bildfell sonur Jóns Ögmundsonar langafaabróður okkar gerðist stöndugur bóndi í Foam Lake og gaf árið 1895 land undir kirkjugarð fyrir fólk af íslenskum ættum. Og þarna eru leiði kynslóða með kunnugleg nöfn. Eiginlega merkilegast að það  er auðsjáanlega enn verið að jarða fólk. Einn nýlegur steinn var meira að segja merktur Doris og hún auðsjáanlega ekki dáin enn.
Þarna er leiði frændans frá Bíldsfelli sem seldi allt sitt og flutti með börnin sín í aðra heimsálfu til að skapa þeim betra líf. Umhverfis hann eru minningarmörk fjölda afkomenda. Mér varð hugsað til bróður hans sem aldrei fór lengra en úr Grafningi yfir í Ölfus og liggur meðal afkomenda sinna í Kotstrandarkirkjugarði.
Steinn Jóns Ögmundssonar er orðinn nokkuð máður

Ummæli