Calgary
![]() |
| Útsýni til Klettafjalla úr Calgary turninum |
Svava ók eins og herforingi inn í Calgary á háannatíma í brjálaðri umferð. Leiðsögukonan í tækinu brást okkur ekki, þó við höfum stundum verið óþægar við hana. Við enduðum án vandræða á bílastæði Clarion hótelsins áfangastaðr okkar þetta kvöldið. Héðan leggur ferðin okkar af stað uppí Klettafjöllin á miðvikudagsmorguninn. Þá eigum við 1 dag til að skoða Calgary. Fengum okkur snarl á hótelinu og horfðum aðeins á körfubolta. Kanadamenn eru alveg að springa af hamingju yfir að vera með eina kanadíska liðið í úrslitum NBA. Þeir hefðu getað klárað þetta heima núna en töpuðu með einu stigi.
Um morguninn skiluðum við bílnum og tókum strætisvagn í miðbæ Calgary. Borgin er mjög lík öðrum kanadískum borgum breiðir sig vítt og breytt með frekar lágreistum byggingum. Nema á litlu svæði í miðbænum þar spretta upp hrikalegir gler og stál turnar eins og gorkúlur. Það er nokkuð skrítið að standa allt í einu og horfa upp eftir glerhýsunum. Við gerðum að sjálfsögðu það sem ferðamenn gera fórum upp í Calgary turninn. Hann er svona tilgangslaus 191 m hár útsýnisturn byggður til að minnast 100 ára afmæli sambandsríkisins Kanada 1967.

Gengum göngugötuna í Calgary, kíktum í búðir en fundum okkur svo strætó á hótelið. Við áttum nefnilega að mæta til að hitta hópinn sem við munum ferðast með næstu vikurnar. Þetta reyndist 11 manna hópur auk fararstjórans sem líka ekur bílnum. Hann er ungur maður frönskumælandi kanadamaður frá Quebec og er mjög þolinmóður að eiga við miðaldra konur. Því það eru bara 2 karlar í hópnum og þeir eru með konurnar sínar. Önnur hjónin bresk en hin frá Ástralíu. Svo eru 3 breskar, 2 írskar og 2 íslenskar konur á besta aldri. Allt vant ferðafólk og mætt með rétta hugarfarið. Vorum bara kátar að fundinum loknum.

Ummæli
Skrifa ummæli