Endurlit til 1975

Hópurinn við skólabílinn frá Árborg
Undanfarna daga höfum við notið gestrisni Anderson fjölskyldunnar hér í Kanada. Þau voru gestgjafar mínir í minni fyrstu utanlandsferð, unglingaferð til Manitoba. Við Shianne kynntumst fyrst þegar við deildum svefnsófa á bernskuheimili hennar í Arborg. Foreldrar hennar, Josefine og Beggi, búa enn í  sinni íbúð á heimaslóðum. Við höfum haldið sambandi allan þennan tíma og ýmsir meðlimir fjölskyldunnar komið til Íslands. Því þau eru öll mjög upptekin af íslenskum uppruna sínum og fylgjast með ótrúlega mörgu á Íslandi.  En ég hef ekki komið aftur til Kanada síðan en eftir að Josefine varð facebook-vinkona mín hefur hún ekki sparað hvatningarorðin. Svo nú var loksins lagt í hann.  Shianne og fjölskylda hennar tók okkur opnum örmum og gat ekki nógsamlega stjanað við okkur. Við heimsóttum gömlu hjónin í Arborg og það var að sumu leyti eins og við hefðum síðast hist í gær. Josefine dró fram albúm með myndum úr heimsókninni 1975. Þar var líka ferðaáætlun og upptalning á hverjir stóðu að skipulagningu móttökunnar. Við vorum í 3 vikur og fórum í alls konar ferðir og ótal félög og sjálfboðaliðar komu að því taka á móti hópnum.  Arborg er 1400 manna samfélag,  í hópnum voru 30 unglingar og þónokkrir fullorðnir og öllum var komið fyrir í heimahúsum, samanber útdregna svefnsófann okkar Shianne í geymslunni.
Ég var búin að gleyma mörgu úr dagskránni en ótrúlega margt rifjaðist upp við að skoða myndirnar með fólki sem  bar hitann og þungann af þessari móttöku.  14 ára ég gerði mér auðvitað enga grein fyrir hversu mikið mál þetta hefur verið en ég man enn hversu stórkostlegt ævintýri þetta var.

Ummæli