Göngudagurinn mikli

Fyrsti viðkomustaður var Lake Louise, himinblátt fjallavatn nefnt eftir dóttur Viktoríu drottningar. Svæðið orðið þéttskipað ferðamönnum strax í morgunsárið. En við vorum á leið í göngu upp að Lake Agnes  og þaðan stefndu mestu hetjurnar á næsta tind. Byrjuðum að pjakka upp í móti næstu 4 km, tók langan tíma en hafðist að lokum.  Sátum á bekk, borðuðum nestið og nutum fegurðar fjalladýrðarinnar. Göngugarparnir hurfu áfram upp í skóginn og síðar sáum við til þeirra í fönn hátt í fjallinu.
Það var nóg fyrir rasssíða að halda af stað niður aftur sem reyndist sýnu auðveldara en streðið upp. Á leiðinni brast á með þrumuveður sem glumdi í tindunum allt í kring. En það gat varla heitið að það ringdi. Alla leiðina mættum við fólki, sem var mjög misjafnlega útbúið.  Allt frá fjallaklifurgræjum yfir í japanskar ömmur á inniskóm. En niður að Lake Louise komumst við aftur  og áttum góða stund við vatnið áður en allir voru mættir.
Það var einkar ljúft að fara í heita pottinn á hótelinu og fá góða máltíð. Mæligræjan í símanum sýndi 12,4 km en það er sjálfsagt ekki alveg að marka þvi mörg skrefin voru stutt í bröttustu brekkunum.





Ummæli