Haldið í vestur

Langt í næstu beygju
Yfirgáfum Winnipeg á laugardagsmorgni. Eftir að hafa kvatt gestgjafa okkar með virktum héldum við út úr borginni og vorum fljótlega komnar út á sléttur Manitoba. Það er dálítið skrýtið þegar leiðsögutækið segir: akið beint næstu 280 km. Eftir að hafa ekið í einum rikk 1100 km  til Winnipeg ákváðum við að gista 2 sinnum á leiðinni til baka. Stefnan var tekin á Caronport bæ við veginn í Saskatchewan. Svo var ekið og landið er flatt og allt akrar. Eina sem fangar augað eru risavaxin kornsíló við járnbrautarlínuna. Einu lestirnar sem fara um eru nær óendanlegar vörulestir, farþegaflutningar  með lestum hafa nær alveg lagst af. Kanadamenn aka mikið, eiga stóra og kraftmikla bíla og risastór hjólhýsi. 
Tilbreytingarlítið landslag
Ókum 600 km, um sléttur Manitoba og síðan Saskatchewan. Caronport reyndist vera, bensínstöð, Subway,  The Pilgrim Inn og biblíuskóli. Það voru myndir á veggjum hótelsins af flugvellinum og lestarstöðinni sem eitt sinn voru í bænum. En örlög þessa bæjar virðast vera útbreidd á sléttum Kanada.  Fólkið býr í stærri bæjunum en þeir litlu eru mjög hrörlegir á að líta. Gistihúsið lifir auðsjáanlega á fólki sem á leið um veginn, við og nokkrir eldri borgarar hittumst í morgunmatnum.

Þennan dag ákváðum við að óhlýðnast leiðsögutækinu og fundum litla sveitavegi til að fara. Þarna var dálítið landslag,  grænar hæðir með litlum holum milli með vatni sem iðar af fuglalífi. Við sáum alls kyns dýr,  hjartardýr, refi, einhverskonar skottlausa íkorna og alls konar fugla. Þarna hefur fólk á einhverjum tíma byggt sér smábýli en nú standa yfirgefin hús að hruni komin á hverjum bæ. Allt ræktanlegt land endalausir akrar. Ekki breyttist mikið við komuna til Alberta áfram sama flatlendið. Það var ekki fyrr en við héldum niður að Red deer ánni sem landslagið breyttist. 
Landslagið í Badlands
er mjög sérstakt 
Því meðfram ánni er hið undarlegasta landslag, áin hefur einhverntíman í ævaforneskju grafið sig um allan dalinn og hinar furðulegustu sandsteinsmyndanir komið í ljós.  Þessi dagur endaði á móteli í Drumheller.
Ekki ónýtt að geta næstum tjóðrað bílinn við rúmið

Ummæli