Haldið til fjalla
![]() |
| Bow áin í Banff |
Allir mættir tímanlega, spenntir að leggja af stað. Komum okkur fyrir í rútunni og renndum úr hlaði. Fyrsta stopp var matvöruverslun til að kaupa nesti fyrir daginn. Síðan var haldið út á þjóðveg nr. 1 áleiðis til Banff. Fyrsta stopp var við Johnston gljúfrin. Þar er mjög vinsæl gönguleið um 2 km upp með ánni þar sem hún fellur í flúðum og fossum. Leiðin er malbikaður stígur, á köflum göngubrýr utan á klettunum. Þetta var hin skemmtilegasta ganga fyrir utan stöðugan straum af fólki, minnti helst á Gullfoss á góðum degi. Að göngunni lokinni héldum við til Banff og losuðum okkur við dótið á ágætis hóteli í bænum. Fólk fór og skoðaði bæinn hver eftir sínu áhugasviði.
Þjóðgarðurinn í Banff var sá fyrsti sem stofnaður var í Kanada. Síðar var verndarsvæðið stækkað og svæðið kringum Jasper bættist við.
Kanadamenn standa sig vel í að vernda og sýna þetta stórkostlega svæði. Þó massatúrisminn sé í algleymingi þá gengur allt eins og smurt. Snyrtilegir kamrar á hverjum útsynisstað og vel merktir stígar um allt. Íslendingar gætu lært mikið hér hvernig best er að sýna fólki glæsilega náttúru á fjölbreyttan hátt við hæfi hvers og eins.

Ummæli
Skrifa ummæli