Jöklar og fossar
Dagurinn tekinn snemma því nú skyldi haldið í jökulgöngu. Um helmingurinn af hópnum hafði splæst í jökulgöngu með leiðsögn.
Við sem ekki fórum fundum ágætis kaffihús með útsýni til fjalla. Þarna fóru fram miklir fólksflutningar að útsýnispalli á jöklinum. Rúturnar streymdu að og alls konar túristar keyptu sér far með jöklarútunni eða ekki.
Veðrið var hálfgerður dumbungur framan af en létti til þegar leið á daginn. Hæsta fjallið heitir Snowdome og er merkilegt fyrir þær sakir að frá því rennur vatn í 3 heimshöf. Vatnið sem rennur í Athabasca ána endar í Norðuríshafinu, hluti fellur í Saskatchewan ána sem endar í Hudson flóa og Atlantshafinu og að lokum vatn sem rennur í Fraser ána og endar í Kyrrahafinu.
Þegar búið var að heimta jökulfarana var haldið áfram yfir fjallaskörð og dali til Jasper. Stoppuðum á ýmsum stöðum til að njóta útsýnisins eða skoða fallega fossa. Sáum svartbjörn við veginn að gæða sér á fíflum. Hann lét bíla og myndatökur ekkert á sig fá.
Gistum í smáhýsum hjá Pocahontas. Þegar við ætluðum að fara í háttinn var bankað og írsku vinkonur okkar tilkynntu um bjarndýr handan við bílastæðið. Björninn var að bíta gras í rólegheitunum á leikvellinum. Hann hundsaði algerlega túrista með myndavélar sem héldu sig í öruggri fjarlægð. Sat á dyrapallinum fylgdist með bangsa um hríð en svo hvarf hann bak við tré.








Ummæli
Skrifa ummæli