Letidagur á Spruce Hill Ranch

Spruce Hill Ranch er staður sem einhvertíman hefur verið byggður upp af metnaði. Sú er ekki raunin lengur. Kínverskur eigandi eða eitthvað hefur ekki glóru um hvernig á að reka gististað. Það var næstum eins og að vera komin til Kína allt mögulegt í boði en því miður ekki í dag. Og starfsfólkinu gat ekki staðið meira á sama. Ein kínversk þjónustustúlka sem varla skildi ensku og hreingerningamaður sem leit út fyrir að vera nýsloppinn úr fangelsi. Á Steik og Wok veitingahúsinu var hvorki boðið upp á steik né kínverskan mat heldur aðkeypta skyndibita sem tók 2 tíma að afgreiða.
Ljóska á hælaskóm sá um að leggja á hrossin fyrir þá sem lögðu í slíkt ævintýri.
En það var ágætt að eiga rólegan dag, þvo nokkrar spjarir og komast að deginum í dag í ferðasögunni.

Ummæli