Miðaldra konur mæta allt of snemma.
Ég hef einu sinni áður komið til Kanada. Það var sumarið 1975 og ég var 14 ára vandræðalega feiminn unglingur. Guðni í Sunnu skipulagði leiguflug til Winnipeg og Íslendingar flykktust westur um haf. Einhverra hluta vegna komst ég í unglingahóp sem tekið var með kostum og kynjum á Íslendingaslóðum. Öll fjölskyldan flutti mig til Reykjavíkur á umferðamiðstöðina. Þar settist fullt af ókunnugu fólki og beið brottfarar. Þá kom maður sem sagði að það yrði 3 tíma seinkun á fluginu. Allir út og fjölskyldan mín farin og mörg ár í að farsíminn kæmi til sögunnar. Ég fékk að geyma töskuna og tókst að finna Hljómskálagarðinn. Sat þar á bekk og las í bók. Mætti svo aftur á BSÍ og komst á endanum til Kanada.
Ummæli
Skrifa ummæli