 |
| Skemmtilegt byggðasafn í Arborg |
Svæðið sem einu sinni hét Nýja Ísland er á svæðinu milli Winnipegvatns og Manitóbavatns beint norður af Winnipeg. Bæirnir meðfram strönd Winnipegvatns bera flestir íslensk heiti. Árborg er við ĺslendingafljót þónokkuð inn í landi. Gistum í hjólhýsi á "Fölmenningarsafni Árborgar" (Arborg multicultural village). Þar er búið að safna saman gömlum byggingum frá tímum landnemanna og setja upp sýningu sem sýnir hvernig lífi fólks var háttað í hverju húsi fyrir sig. Hér á þessu svæði voru stærstu landnemahóparnir Íslendingar, Úkraínumenn, Pólverjar og fleiri hópar frá austur Evrópu.
Um morguninn var haldið af stað í skoðunarferð um Nýja Ísland. Héldum um sveitavegi fram hjá vandlega merktum íslenskum bæjarskiltum. Í Riverton hittum við Nelson Gerrard og Joel Fridfinnsson. Þeir eru upptendraðir áhugamenn um ættfræði, sögu og þjóðfræði. Hafa báðir verið á Íslandi og tala ágætis íslensku. Nelson er núverandi eigandi Víðivalla, sem upphaflega var landnám Guttorms J. Guttormssonar skálds og hans fjölskyldu. Nelson býr með geitur og kindur sér til ánægju. Hann er líka höfundur byggðasögu Nýja-Íslands og ryður upp úr sér ætt og uppruna Íslendinga í Vesturheimi sama hvar borið er niður. Jóel vinnur á stórbúi ættar sinnar en er líka mikll áhugamaður um byggðasögu.
 |
| Nelson, Jóel og heimalingurinn fræða gesti. |
Þeir félagar gengu með okkur niður að Íslendingafljóti að næsta bæ Nesi. Þar er fyrsti kirkjugarðurinn sem jarðað var í eftir landnámið. Skömmu eftir komuna til nýrra heimkynna kom upp bólusótt og heilu og hálfu fjölskyldurnar dóu. Þá var jarðað á þessum stað því þar var útfararstaður innfæddra. En fljótlega var reist kirkja annars staðar og grafreiturinn lagðist af. Nokkru síðar hófu landnemar búskap í Nesi og ruddu um leiðunum og byggðu bæinn sinn þar ofaná. Að sjálfsögðu hefndist þeim fyrir þetta tiltæki, maðurinn fékk kýli á hálsinn að dó með harmkvölum. Ekkjunni varð ekki vært í húsinu sökum draugagangs og flæmdist burtu. Seinna reyndu margir að búa þarna en enginn hélst við því draugarnir voru ekki sáttir. Húsið stóð yfirgefið með draugunum þar til það var rifið. Nú stefnir sögufélagið að því að afmarka staðinn og setja upp upplýsingaskilti. Verður væntanlega vígsla seinna í sumar. Sögufélagið er líka að endurgera Engimýri, sögufrægt hús í Riverton.
 |
| Komin stytta í garðinn |
Við fengum skoðunarferð um húsið og að heyra allt um framtíðaráform félagsins. Var þetta hin ágætasta skemmtun og mjög fróðlegt. Félagið stóð líka fyrir að reist var minnismerki og stytta af Sigtryggi Jónassyni, sem nefndur hefur verið faðir Nýja-Íslands. Hann ferðaðist um til að finna stað fyrir nýlenduna og eftir stofnun hennar var hann forgöngumaður við að koma á stofn ýmsum nauðsynlegum stofnunum í nýju samfélagi.
Eftir nauðsynlega heimsókn í kaupfélagið í Riverton var haldið norður á Hecla eyju. Í upphafi var eyjan nefnd Mikley en hefur haft hitt nafnið um árabil. Eyjan er nú verndarsvæði og vinsæll sumardvalarstaður. Aðeins er eftir af smábátaútgerð en annars eru þar lystibátar í höfn. Frá Hecla var haldið suður á bóginn aftur til Winnipeg með viðkomu í Gimli og Tergersen versluninni.
 |
| Rólegt við Íslendingafljót |
 |
| Sigtryggur Jónasson faðir Nýja-Íslands |
Ummæli
Skrifa ummæli