Trans Canadian Highway nr. 16

Þjóðvegur 16 liggur þvert yfir Kanada frá Nýfundnalandi til Victoria ríflega 7.800 km. Frá Edmonton til Winnipeg eru 1.300 km. Við kláruðum 200 af þeim í gærkvöldi svo ljóst er hvað gert verður í dag. Edmonton stendur á flatlendi en útsýnið takmarkaðist af bláu mistri sem liggur yfir. Það orsakast af gríðarlegum skógareldum sem geysa um norðurhluta Alberta.  Fyrstu áhrifin eru að í Kanda er nóg pláss. Sléttan er óendanlegir akrar, trjáþyrpingar og hús á víð og dreif. Þjóðvegurinn varð til meðfram járnbrautinni og lestirnar þurftu að stoppa á u.þ.b. 60 km fresti til að taka vatn og kol. Við þessa aðfangastaði lestanna varð til þorp. Þar er nú sjoppa og bensínstöð fyrir ferðalanga um þjóðveginum. Því Kanadamenn aka mikið um þetta víðfema land sitt.
Staðarskáli er víða
      

Ummæli