Ætt og uppruni

Byggðar- og ættarsögur um hverja sveit.
Fólkið sem maður hittir er upp til hópa glaðir og sáttir Kanadamenn. Auðvitað mis sáttir við hvernig landinu er stjórnað og  hvað læknisþjónusta er dýr.  En allir eru áhugasamir um hvaðan þeir komu og hverra manna þeir eru. Eftir allan þennan tíma eru flestir blandaðir á allra handa máta. Áttum skemmtilega kvöldstund með gestgjöfum okkar þar sem við röktum saman ættir okkar með því að finna forföður fæddan á Íslandi í ættfræðibók viðkomandi svæðis og rekja saman í Íslendingabók. Ekki fannst náinn skyldleiki en úr varð hin besta skemmtun.

Ummæli