Winnipeg
Winnipeg er stórborg en samt ekkert svo mjög frábrugðin öðrum bæjum sem við erum búnar að upplifa hér í Kanada. Menn halda sig við jörðina, eru ekkert sérstaklega að teygja sig upp í loftið. Því er landið nýtt til að byggja fremur lágreist hús við langar götur. Ókum gegnum borgina í kvöldhúminu með dyggri aðstoð leiðsögutækisins og fundum elskulega vini sem tóku okkur opnum örmum. Þau ætla að hýsa okkur næstu daga og ganga í það af lífi og sál gera okkur dvölina sem notalegasta.
Tókum hlutunum með ró eftir keyrslu undanfarið en heimsóttum The Forks helsta ferðamannastað Winnipeg. Það er staðsett þar sem árnar Rauðá og Assiniboine mætast í hjarta borgarinnar.
![]() |
| Manitobaháskóli Winnipeg |
Shianne gestgjafinn okkar vinnur við Manitobaháskóla svo þangað fórum við í skoðunarferð. Hittum yfirmann íslenskudeildarinnar og hann sýndi okkur íslenska bókasafnið. Þar hefur verið lagður mikill metnaður í uppbyggingu en núna vantar bókasafnsfræðing. Spennandi ekki satt. Einhvern faglegan áhuga verður að sýna í fræðslu- og menningarferð. Við háskólann eru hátt í 30.000 nemendur og hann býður uppá nám í flestum greinum. Það var verið að útskrifa svo um allt svæðið var ungt fólk í skrýtnum skikkjum að gleðjast með fjölskyldu sinni.
![]() |
| Viðskotaillar gæsir eru visst vandamál um varptímann. |
![]() |
| Baldur Stefánsson faðir Canola repjunnar |



Ummæli
Skrifa ummæli